Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- fjármögnunarleið til fjárstuðnings við ytri landamæri og vegabréfsáritanir
- ENSKA
- instrument for financial support for external borders and visa
- Svið
- dómsmálasamstarf
- Dæmi
-
[is]
Vegna sérstakra lagalegra þátta sem gilda um V. bálk sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins er ekki lagalega mögulegt að stofna sjóðinn sem eina fjármögnunarleið. Því ætti að stofna sjóðinn sem heildarramma fyrir fjárstuðning Sambandsins á sviði innra öryggis sem nær yfir fjármögnunarleiðina til fjárstuðnings við ytri landamæri og vegabréfsáritanir (hér á eftir nefnd fjármögnunarleiðin), sem komið er á með þessari reglugerð, og fjármögnunarleiðina til fjárstuðnings við lögreglusamvinnu, forvarnir og baráttu gegn afbrotum og krísustjórnun, sem komið var á fót með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 513/2014.
- [en] Due to the legal particularities applicable to Title V TFEU, it is not legally possible to establish the Fund as a single financial instrument. The Fund should therefore be established as a comprehensive framework for Union financial support in the field of internal security comprising the instrument for financial support for external borders and visa (the Instrument) established by this Regulation as well as the instrument for financial support for police cooperation, preventing and combating crime, and crisis management established by Regulation (EU) No 513/2014 of the European Parliament and of the Council (4).
- Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 515/2014 frá 16. apríl 2014 um að koma á fót, sem hluta af Sjóðnum fyrir innra öryggi, fjármögnunarleið til fjárstuðnings við ytri landamæri og vegabréfsáritanir og um niðurfellingu á ákvörðun nr. 574/2007/EB
- [en] Regulation (EU) No 515/2014 of the European Parliament and of the Council of 16 April 2014 establishing, as part of the Internal Security Fund, the instrument for financial support for external borders and visa and repealing Decision No 574/2007/EC
- Skjal nr.
- 32014R0515
- Athugasemd
-
Heyrir undir Sjóðinn fyrir innra öryggi, sjá einnig fjármögnunarleiðina til fjárstuðnings við lögreglusamvinnu, forvarnir og baráttu gegn afbrotum og krísustjórnun.
- Aðalorð
- fjármögnunarleið - orðflokkur no. kyn kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.